TÖL101G Haust 2013
Almennar upplýsingar
Kennari í námskeiðinu er Páll Melsted lektor í tölvunarfræði. Bókin sem við notum í námskeiðinu er Introduction to Programming in Java: An Interdisciplinary Approach eftir Robert Sedgewick og Kevin Wayne og fæst í Bóksölunni.
Einnig munum við nota efni úr heftinu Rökstudd forritun í Java eftir Snorra Agnarsson.
Lögð verða fyrir vikuleg heimadæmi, bæði verkefni úr bókinni og af vikublöðum. Í vikublöðum verður yfirlit yfir það efni sem við höfum farið yfir og heimadæmum til að skila.
Yfirlit yfir námsefni Allar glærur birtast hér
Námsefni til prófs
Tímar
-
Fyrirlestrar eru á miðvikudögum kl. 8:20-9:50 og á föstudögum kl. 10:00-10:40 í HT-105 í Háskólatorgi (nema föstudaginn 26. ágúst, þá erum við í HT-102).
-
Þar sem kennslustofurnar eru ekki nógu stórar verða aukafyrirlestrar á fimmtudögum kl. 8:20-9:50 og á föstudögum kl. 12:30-13:10.
-
Skipting í aukafyrirlestra er eftirfarandi
- Aðalsteinn - Hörður mæta í venjulega tíma á miðvikudögum og fyrri tímann á föstudögum.
- Ingibjörg - Össur mæta í tíma merkta f-auka á fimmtudögum og seinni tímann á föstudögum.
-
Dæmatímar eru 2x40 mínútur samvkæmt stundaskrá.
-
Vinnustofur verða á föstudögum kl. 10:50-12:20 í HT-103 með frjálsri mætingu.
Námsmat
- Lokaeinkunn er 70% prófseinkunn og 30% meðaltal 10 bestu heimadæma af 13.
- Prófseinkunn er annað hvort 100% einkunn úr lokaprófi eða 70% lokapróf og 30% miðannarpróf, hvort sem er hærra.
- Í heimadæmum verða gefin stig fyrir æfingar og verkefni. Verkefni hafa meira vægi en æfingar í yfirferð.
Piazza
Umræðuhópar hafa verið settir upp á piazza.
Piazza vefurinn verður notaður fyrir tilkynningar og að svara almennum fyrirspurnum um námskeiðið og heimadæmin. Það er því mikilvægt að nemendur skoði vefinn reglulega.
Cloudcoder
Hluta af heimadæmum á að skila rafrænt inn á cloudcoder.
Dæmahópar
Hópur | Tími | Staður | Kennari |
d1 | Fim 13:20-14:50 | V-152 | Árni Rúnar Kjartanssonn ari2@hi.is |
d2 | Fös 15:00-16:30 | V-261 | Gísli Hrafnkelsson gih9@hi.is |
d3 | Mið 13:20-14:50 | V-261 | Páll Melsted pmelsted@hi.is |
d4 | Fim 13:20-14:50 | V-157 | Arnar Orri Eyjólfsson aoe4@hi.is |
d5 | Mán 11:40-13:10 | V-156 | Albert Ingi Haraldsson aih3@hi.is |
d6 | Mán 13:20-14:50 | Et | Vignir Már Lýðsson vml1@hi.is |
d7 | Mið 15:50-17:20 | V-157 | Karl Bachmann Stefánsson kbs15@hi.is |
d8 | Fös 13:20-14:50 | V-158 | Baldur Yngvason bay1@hi.is |
d9 | Mán 16:40-18:10 | V-152 | Kristján Eldjárn Hjörleifsson keh4@hi.is |
d10 | Fim 16:40-18:10 | V-261 | Haukur Óskar Þorgeirsson hth152@hi.is |
Skiptingar í dæmahópa eftir Stafrófsröð og Hópum. Ef nemendur eru ekki skráðir í hóp eða vilja skipta um hóp þarf að fylgja leiðbeiningum sem er að finna inni á Piazza.
Stofur merktar V eru í VR II, Et er í kjallara Endurmenntunar (einnig kallað Naust) og Á er Árnagarður. Ekki má skipta um dæmahópa án leyfis kennara eða dæmatímakennara.
Vikublöð og verkefni.
Heimadæmi birtast á vikublöðum fyrir hverja viku. Dæmunum er skipt niður í æfingar og verkefni. Í æfingum mega nemendur hjálpast að við lausnir en verða alltaf að skila eigin lausn. Í verkefnum mega nemendur ekki hjálpast að við lausnir og verða alfarið að skila sinni eigin lausn. Athugið að einnig er hægt að fá hjálp við æfingar í vinnustofum.
Vikublöð
- Vikublað 1 - skil 3. sept Lausn
- Vikublað 2 - skil 10. sept,Lausn beinagrind fyrir verkefni RandomWalk.java
- Vikublað 3 - skil 17. sept Lausn
- Vikublað 4 - skil 24. sept Lausn
- Vikublað 5 - skil 1. okt. Lausn - hér þarf að nota StdIn.java og StdDraw.java og setja í sömu möppu og java forritin ykkar. Skrár fyrir verkefni t1.txt, t2.txt og t3.txt
- Vikublað 6 - skil 8. okt Lausn
- Vikublað 7 - skil 15. okt Lausn
- Vikublað 8 - skil 22. okt Lausn
- Vikublað 9 - skil 29. okt Lausn Fyrir heimadæmin þarf að nota Stopwatch.java, Point2D.java og Line2D.java. Einnig má nota LogFact.java og LogFact2.java við lausn á æfingu 2.3.2.
- Vikublað 10 - skil 5. nóv Lausn Fyrir heimadæmin á að byggja á Vector.java og Shape.java.
- Vikublað 11 - skil 12. nóv Lausn Í verkefninu á að nota SimpleVector.java
- Vikublað 12 - skil 19. nóv Lausn
- Vikublað 13 - skil 26. nóv Lausn Í verkefninu á að byggja á HashST.java
Gömul próf
Eldri próf eru aðgengileg á Uglunni
Ýmislegt efni tengt námskeiðinu
Vefsíða bókarinnar inniheldur mikið af gagnlegum upplýsingum.
Uppsetning á Java umhverfi fyrir Mac, Windows og Linux ATH við munum ekki nota DrJava eða neitt IDE í þessu námskeiði.
Jeliot sýnir hvernig java forrit eru keyrt, lið fyrir lið. Ágætt fyrstu vikurnar, en hefur sínar takmarkanir.
Það er nauðsynlegt að vera með ritil (editor) sem litar kóðann, eitthvað aðeins meira en notepad. Hér er listi af ókeypis ritlum eftir stýrikerfum.
Windows
Mac
- Textwrangler
- Kod
- Aquamacs
- MacVim
- XCode