TÖL201G Vor 2016
Almennar upplýsingar
Kennari í námskeiðinu er Páll Melsted dósent í tölvunarfræði.
Lögð verða fyrir vikuleg heimadæmi af vikublöðum.
Lesefni
Fyrir vikur 1-4 verða fyrirlestranótur og annað lesefni lagt jafnóðum fyrir. Fyrir vikur 5-13 verður farið í línulega algebru og við munum styðjast við bókina Vectors, Matrices, and Least Squares eftir S. Boyd og L. Vandenberghe. Vefsíða bókar
Yfirlit yfir námsefni
- Vika 1, 12. janúar. Kynning, yfirlit yfir python, notebooks, fleititölur. Glærur Notebook
- Vika 2, 19. janúar. Reikniskekkja og Taylor raðir. Glærur Notebook, Python kynning
- Vika 3, 26. janúar. Taylor raðir og Töluleg diffrun. Glærur Notebook Notebook 2, Python kynning
- Vika 4, 2. febrúar. Helmingunarleit, Aðferð Newtons. Glærur Notebook Notebook 2
- Vika 5, 9. febrúar. Línulega algebra, kafli 1 í bók. Glærur Notebook
- Vika 6, 16. febrúar. Línulega algebra, kafli 2,3 í bók. Glærur
- Vika 7, 23. febrúar. Línulega algebra, kafli 4,5 í bók. Glærur
- Vika 8, 2. mars. Línulega algebra, kafli 6,7,8 í bók. Glærur Notebook
- Vika 9, 9. mars. Fylkjamargföldun og andhverfur, kafli 8,10,11 í bók. Glærur Notebook
- Vika 10, 16. mars. Andhverfur og minnstu fervikavandamál, kafli 11,12 í bók. Glærur Notebook
- Vika 11, 23. mars. Aðhvarfsgreining, gagnavinnsla og reiknigreind (flokkun), kafli 12,13 í bók. Glærur Notebook
- Vika 12, 30. mars. Aðhvarfsgreining, gagnavinnsla og reiknigreind (flokkun), kafli 12,13,14 í bók. Glærur
- Vika 13, 6. apríl. Minnstu fervik með mörgum markföllum. Kafli 15 í bók. Upprifjun
-
Vika 14, 20. apríl. Upprifjun
Tímar
- Fyrirlestrar eru á fimmtudögum kl. 10:00-12:20 í stofu N-132 í Öskju.
- Dæmatímar eru 2x40 mínútur samvkæmt stundaskrá.
Námsmat
- Lokaeinkunn er 60% prófseinkunn og 40% námseinkunn.
- Námseinkunn er 40% og skiptist í 25% meðaltal 8 bestu heimadæma af 10, 5% skil á 10 fyrirlestraræfingum og 10% fyrir tvö hópverkefni.
- Til að hljóta próftökurétt á lokaprófi verður að skila að minnsta kosti 5 af fyrstu 8 heimadæmum og 5 af fyrstu fyrirlestraræfingunum. Nemendur sem ekki ná þessum lágmörkum verða skráðir úr námskeiðinu.
Piazza
Umræðuhópar hafa verið settir upp á piazza.
Piazza vefurinn verður notaður fyrir tilkynningar og að svara almennum fyrirspurnum um námskeiðið og heimadæmin. Það er því mikilvægt að nemendur skoði vefinn reglulega.
Gradescope
Farið verður yfir heimadæmi á Gradescope, nánari upplýsingar er að finna á Piazza.
Dæmahópar
Grunnur að hópaskiptingu er eftir stafrófsröð en annars er frjálst að skipta á milli.
| Hópur (nöfn) | Tími | Stofa | Kennari |
|---|---|---|---|
| d1 (A-E) | Mið 11:40-13:10 | V-156 | Kári Snær Kárason |
| d2 (F-O) | Þri 15:00-16:30 | V-147 | Páll Melsted |
| d3 (Ó-Ö) | Mið 13:20-14:50 | O-106 | Andri Friðriksson |
Stofur merktar V eru í VR II, O er Oddi
Vikublöð og verkefni.
Heimadæmi birtast á vikublöðum fyrir hverja viku. Í heimadæmum mega nemendur ekki hjálpast að við lausnir og verða alfarið að skila sinni eigin lausn.
Vikublöð
- Vikublað 1 - skil 16. janúar kl. 23:59. Skema fyrir lausn notebook
- Vikublað 2 - skil 20. janúar kl. 23:59. Notebook skema fyrir lausn v2.ipynb
- Vikublað 3 - skil 27. janúar kl. 23:59.
- Vikublað 4 - skil 3. febrúar kl. 23:59.
- Vikublað 5 - skil 10. febrúar kl. 23:59
- Vikublað 6 - skil 17. febrúar kl. 23:59
- Vikublað 7 - skil 24. febrúar kl. 23:59
- Verkefni 1 - skil 10. mars kl. 23:59. kmeans.py, albums.zip, mnist.zip, Python notebook
- Vikublað 8 - skil 17. mars kl. 23:59. Notebook skema fyrir lausn v8skema.ipynb
- Vikublað 9 - skil 24. mars kl. 23:59.
- Vikublað 10 - skil 31. mars kl. 23:59. Notebook skema fyrir lausn v10skema.ipynb, skrá með gögnum v10d3.npz
- Verkefni 2 - skil 21. apríl kl. 23:59 Python notebook, mnist.zip
Efni til prófs
- Nema annað sé sérstaklega tekið fram er allt efni af glærum, vikublöðum, verkefnum, notebooks og efni úr bók til prófs, kaflar 1-15.
- Skrifa þarf lausnir á prófið sjálft, ekki í prófbók. Farið verður yfir prófið í Gradescope og því mikilvægt að skrifa lausnir innan marka. Ekki skrifa aftan á blöð eða út fyrir kassa því blöðin verða skönnuð inn.
- Ef lausn kemst ekki fyrir þá er hægt að merkja í reit og útskýra hvar svarið er að finna.
- Eftirtaldir kaflar eða blaðsíður í bók eru ekki til prófs.
- 2.2 um Taylor raðir af mörgum breytum
- 3.4 sleppa umræðu um Cauchy-Schwarz ójöfnu
- 8.2.1 Taylor nálgun í mörgum víddum
- 9 Kerfislíkön
- bls. 180-182 úr 12.2 um sönnun um lausn á minnstu fervikum
- 13.3 um feature engineering
- 14.2.3 um ROC
- 15.2 um stýringu
- 15.3 um mat og umhverfu
- 15.5 um flækjustig
Ýmislegt efni tengt námskeiðinu
Orðalisti frá Íslenska stærðfræðafélaginu.
Floating point á Wikipedia
IEEE floating point á Wikipedia